Pungsveittur


Friday, March 28, 2003
það sem ég ætla að verða þegar ég verð stór...
Ég ætla að verað það síðasta sem einhver manneskja hugsar um þegar hún sofnar og það fyrsta sem hún hugsar um þegar hún vaknar... því það er ást.... je.


Monday, March 03, 2003
Að þekkja andlit..
Hversu mörg andlit þekki ég eiginlega... þá er ég ekki að tala um nánustu vini, vandamenn og kunningja bara heldur líka til dæmis frægt fólk og bara manninn á götunni sem maður kannast við en hefur aldrei vitað hvað heitir eða stelpa sem maður sá tvisvar í strætó. Málið er að það er ótrúlega mikið af fólki sem maður kannast við andlitið á. Fleiri en ég get talið held ég, eða hvað? Ætli ég geti búið til lista yfir það, og hvernig ætti hann svosem að vera... flokka eftir tengslum við mann; nátengt og ókunnugir. En það er annað sem spilar inní að maður þarf kannski að geta teiknað andlitin sem maður kannast við því það er ekkert víst að maður viti hvað viðkomandi heitir, en ef maður gæti teiknað alla sem maður kannast við mundu teikningarnar skipta þúsundum. Það er heldur ekki hægt að rifja upp alla sem maður kannast við andlitið á, heldur væri best að reyna að taka eftir því yfir á einum degi, hversu mörg andlit maður þekkir, á hverjum degi.


Saturday, March 01, 2003
Nýyrði dagsins...
Betarokk, betarokkast --- Þegar fólk segir aldrei neitt af viti og gerir mikið af því og finnst það töööff... "Stelpan gerði ekkert nema betarokkast..."


Friday, February 28, 2003
Loksins pælingar
Sótt um LHÍ. Taka þriðja aðila sem hefur lítið sem ekkert vit á myndlist en hefur samt skapandi hugsun og hjálpa honum að sækja um listaháskólann... Setja saman möppu fyrir hann úr dóti sem hann á, sem er ekkert endilega tengt myndlist. Finna listina í honum og dótinu sem hann á og/eða hefur búið til. Skapa síðan einhverjar pælingar í kring um stöffið hans og láta hann sækja um. Ef hann þarf að fara í viðtal þá langar mig að treina hann upp í það og smíða utan um hann svona myndlistargrind til að hann geti varpað út á við, og slegið um sig pælingum. Auðvitað mundi ég vinna þetta með viðkomandi og fá hans innputt inn í, ég væri bara svona Yoda. Maðurinn á bak við.

Lífið LIVE. Nú ætla ég að fá mér svona litla button cameru sem hefur kannski 20 km sendiradíus og míkrófón til að vera með alltaf á mér... Búa svo til heimasíðu og senda lífið mitt út live 24/7. Ég þarf ekki að hafa áhorf heldur er þetta bara einhverskonar opinberun í þeirri von um að einhver gæti verið að fylgjast með, og hafi áhuga á því sem ég er að gera. einhverskonar EdTV... je.


Nýtt Pleis
Kominn heim í nýja pleisið... var að flytja hingað inn hjá Gunna og Gumma. Fínasta stöff sko, svolítið skrítið að flytja inn á annað heimili samt, en vonandi getum við bara verið ein stór fjölskylda hérna. Ég er samt með svo svakalega lítið herbergi að það er ekki normal... rétt pláss fyrir rúm og föt, en þetta er allavega ódýrara en að vera að leigja með gunna niðurfrá. Set kannski mynd hingað inn þegar ég fatta hvernig á að fara að því að setja myndir inn á þessa síðu... :P JE!...
Var fokkans þunnur í vinnunni í dag, það hefur aldrei verið eins leiðinlegur og erfiður vinnudagur eins og þessi. Dagurinn byrjaði á því að ég skröldi inn þarna ennþá hálffullur og lyktaði eins og gamall róni, sviti og áfengi, órakaður, í skítugum fötum, ojbarasta...
Ég er samt búinn að ákveða það að ég ætla ekki að fara að skrifa ævisöguna mína hérna heldur ætla ég að nota þetta svæði til að kasta frá mér hugmyndum um allt og ekkert.
Ætla að setja sjálfum mér nokkrar vinnureglur núna, í sambandi við þennan bloggaravef...
[ 1 ] Skrifa inn hérna einu sinni á dag eða oftar.
[ 2 ] Kasta frá mér öllum hugmyndum sem ég fæ.
[ 3 ] Nota þennan vef til að skoða sjálfan mig og vonandi kynnast mér betur.
[ 4 ] Helst ekki skrifa inn persónuleg málefni, aðeins hugleiðingar og pælingar.


Djamm á fimmtudegi...
úfff.... í gær stofnaði ég þetta blogg dót hérna... og svo vorum ég og Gunni að fá okkur bjór og horfa á Liverpool (sem vann by the way :p ). Eftir það fórum við að djamma og einhvernveginn lentum á djammi með einhverju fokkans háskólafólki sem var á kosninganótt... veit ekki meir. Allavega á sama degi og maður stofnaði þetta lenti mér saman við frægasta bloggara íslands, Betu Rokk, og sleikti á henni kirtlana.... hehehe. oj. maður á ekki að segja svona.... en Kúdos Beta.


Thursday, February 27, 2003
jæja... er ég ekki kominn með blogg... svei mér þá... hvað ætla ég að skrifa hérna... veit ekki, kemur í ljós en það verður einhver snilld.